Handknattleiksdeild KA hefur ráðið Gunnar Líndal Sigurðsson sem þjálfara kvennaliðs KA/Þórs. Samningurinn er til tveggja ára og ætlumst við til mikils af Gunnari en hann tekur við liðinu af Jónatan Magnússyni sem stýrði liðinu í 5. sæti Olís deildar á nýliðnum vetri.
Gunnar hefur mikla reynslu af þjálfun en hann var til að mynda aðalþjálfari karla- og kvennaliðs Stryn í Noregi þar sem hann stýrði báðum liðum tvívegis upp um deild. Hann var kjörinn þjálfari ársins í 2. deild kvenna tímabilið 2014-2015. Þá var hann ráðinn sem sérfræðingur í þróun leikmanna af Norska handknattleikssambandinu.
Uppgangur KA/Þórs hefur verið mikill síðustu ár og er Gunnar gríðarlega spenntur að halda áfram þeirri vegferð. Það er því klárt að það verður áfram mikill kraftur í kvennastarfi KA/Þórs.