Græna tunnan: fjáröflun handknattleiksdeildar og unglingaráðs

Handknattleiksdeild/unglingaráð KA er í samstarfi við Íslenska Gámafélagið að breiða út Grænu tunnuna en sem er liður í umhverfisstefnu Akureyrarbæjar. Um leið er þetta fjáröflun fyrir félagið.

  1. Viltu losna við að fara í grenndargáma?
  2. Viltu styrkja KA í leiðinni?
  3. Verð 950 kr. á mánuði.
  4. Verum umhverfisvæn, flokkum rusl í grænu tunnuna og losnum við ferðir í grenndargáma.
  5. Í grænu tunnuna fer endurvinnanlegt sorp t.d. dagblöð, fernur, plast, rafhlöður og áldósir.
  6. Hafið samband og pantið tunnu. Þú getur hringt í síma 892-2612 eða 462-3482 og svo má líka senda tölvupóst á ka-handbolti@ka-sport.is.