Fyrsti leikur Akureyrar á árinu, heimaleikur gegn ÍR

Eftir að hafa fylgst undanfarið með heimsmeistarakeppni karla í sjónvarpinu er loksins komið að því að handboltaáhugamenn fá aftur tækifæri til að verða þátttakendur í lifandi handboltaleik. Hér á Akureyri byrjar tímabilið með látum, tveir stórleikir í vikunni þar sem liðin sem eru efst og jöfn í Olís-deildinni mæta í Íþróttahöllina.

Á fimmtudaginn mæta ÍR-ingar undir stjórn góðkunningja okkar Bjarna Fritzsonar en sá leikur er liður í Olís-deildinni og hefst hann á hefðbundnum tíma klukkan 19:00. ÍR-ingar fóru illa með Akureyrarliðið þegar liðin mættust í Breiðholtinu fyrr í vetur og er ekki spurning að heimamenn vilja svara fyrir sig í Höllinni.

Bæði lið fengu að kenna á meiðslum lykilleikmanna undir lok ársins og ekki vitað hvernig ástandið er á mannskapnum í dag.

Akureyri hefur fengið til liðs við sig tvo nýja leikmenn, markvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson er mættur til leiks og um síðustu helgi kom til liðsins danski leikmaðurinn Nicklas Selvig sem tekur stöðu Elíasar Más Halldórssonar sem sneri aftur til Hauka.

Nicklas Selvig
Nicklas (28) sækir að Herði Fannari Sigþórssyni í bikarúrslitaleiknum í Færeyjum síðasta vetur

Það er gríðarleg spenna á öllum vígstöðvum í Olís deildinni þar sem öll stig skipta gríðarlegu máli og þar skiptir stuðningur áhorfenda gríðarlegu máli. Að vanda verður dýrindis matur í stuðningsmannaherberginu fyrir leikinn.

Á sunnudaginn er svo annar spennuhlaðinn leikur þegar hitt toppliðið, Valur kemur en sá leikur er í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarsins og er að sjálfsögðu upp á líf og dauða. Valsleikurinn hefst klukkan 16:00 á sunnudaginn en meira um hann síðar.

Með von um að sjá þig í Íþróttahöllinni,
Leikmenn og stjórn Akureyrar Handboltafélags.

Leikauglýsing