Bruno Bernat framlengir um tvö ár

Handbolti
Bruno Bernat framlengir um tvö ár
Jón Heiðar og Bruno handsala samninginn góða

Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og leikur því áfram með sínu uppeldisfélagi næstu árin. Bruno sem verður 23 ára í næsta mánuði hefur staðið fyrir sínu í marki KA liðsins undanfarin ár og nú er ljóst að áframhald verður á því.

Bruno kom af krafti ungur inn í markið í meistaraflokksliði KA og hefur verið gríðarlega öflugur. Hann hefur þó átt við meiðsli að stríða í vetur en hefur ekki látið það koma í veg fyrir að spila nær alla leiki ásamt Nicolai Horntvedt Kristensen.

Bruno hefur undanfarin ár verið með eina bestu hlutfallsmarkvörsluna í deildinni og þá lék hann á sínum tíma með U21 árs landsliði Íslands. Við erum afar spennt fyrir því að halda Bruno áfram innan okkar raða en auk þess að vera frábær í markinu er Bruno þekktur fyrir frábærar sendingar upp völlinn sem hafa gefið fjölmörg mikilvæg hraðaupphlaupsmörk undanfarin ár.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is