Anna Þyrí skrifar undir nýjan tveggja ára samning

Anna Þyrí Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og leikur því áfram með liðinu en KA/Þór tryggði sér aftur sæti í efstudeild með sannfærandi sigri í Grill66 deildinni í vetur. Þetta eru gífurlega jákvæðar fréttir enda hefur Anna Þyrí sýnt sig og sannað sem einn besti línumaður og varnarmaður landsins undanfarin ár.

Anna Þyrí sem er 24 ára gömul er uppalin hjá KA/Þór og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið algjör lykilmaður í meistaraflokksliði félagsins. Hún hefur varla misst úr leik undanfarin sjö tímabil og hefur nú leikið 166 leiki í deild, bikar og evrópu fyrir KA/Þór.

Með KA/Þór hefur hún hampað öllum þeim titlum sem eru í boði er stelpurnar urðu Íslandsmeistarar, Bikarmeistar, Deildarmeistarar og Meistarar Meistaranna. Anna Þyrí sýndi gríðarlegan karakter þegar Íslandsmeistaratitlinum var landað en þrátt fyrir að vera fárveik beit hún heldur betur á jaxlinn og átti risastóran þátt í því að stelpurnar kláruðu sterkt lið Vals að Hlíðarenda í lokaleik tímabilsins.

Eins og áður segir er Anna Þyrí gríðarlega öflugur línumaður og þá er hún gríðarlega sterk í vörn þar sem hún leikið iðulega sem bakvörður. Anna var fastamaður í yngrilandsliðum Íslands og endaði meðal annars í 5. sæti á Evrópumeistaramótinu með U-19 ára liðinu. Undanfarin ár hefur hún svo verið valin í B-landslið Íslands.

Við erum gríðarlega ánægð með að halda Önnu Þyrí áfram innan okkar raða og klárt að við höldum áfram okkar flottu vegferð að spila á uppöldum leikmönnum og höldum í okkar gildi. Við tilefnið var Anna Þyrí mynduð við skilti ÁK Smíði og Miðstöðvar en báðir aðilar eru lykilstyrktaraðilar KA/Þórs og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir frábært samstarf á undanförnum árum.