Þá er Evrópumeistaramótinu lokið og þar með fer N1 deildin á fulla ferð að nýju hér heima. Á fimmtudaginn fer fram heil
umferð í deildinni og fyrsti leikurinn er einmitt hér í Íþróttahöllinni þar sem við fáum firnasterkt lið HK í
heimsókn.
Leikurinn er ákaflega þýðingarmikill fyrir bæði liðin sem eru í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í vor.
Baráttan er jöfn þar sem HK og FH eru í 2. – 3. sæti, einu stigi á undan Akureyri og Fram og því augljóst að það
verður ekkert gefið eftir í þessum leik.
Lið HK er lítið breytt frá síðustu leiktíð og er gríðarlega vel mannað. Landsliðsmaðurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur
farið fyrir liðinu og hann þarf varla að kynna fyrir íslenskum handboltaáhugamönnum. Ólafur var í valinn handknattleiksmaður ársins
á lokahófi HSÍ síðastliðið vor, valinn í úrvalslið ársins auk þess að vera valinn besti sóknarmaður
ársins.
Hornamaðurinn, Bjarki Már Elísson hefur farið á kostum í vetur og er markahæstur þeirra HK manna það sem af er og var valinn til
landsliðsæfinga í vetur. Þá er línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson einn mikilvægasti leikmaður liðsins, skorar ávalt mikið
og hefur oftar en ekki reynst Akureyrarliðinu erfiður hér í Höllinni. Skyttan Tandri Már Konráðsson hefur leikið frábærlega í
vetur og ljóst að þar fer leikmaður sem þarf að hafa góðar gætur á.

Ólafur Bjarki, Bjarki Már, Atli Ævar og Tandri Már
Það verður forvitnilegt að sjá hvernig liðin koma til leiks eftir þetta langa hlé á deildarkeppninni. Einhverjir leikmenn fóru í
smávægilegar læknisaðgerðir og aðrir fengu langþráða hvíld fyrir lúin bein. En nú er biðin á enda fyrir leikmenn og
áhorfendur og alveg örugglega hægt að lofa rafmögnuðum leik enda hvert stig dýrmætt í baráttunni sem framundan er.
En það eru ekki bara leikmenn heldur ekki síður áhorfendur sem bíða spenntir eftir leiknum enda var Akureyrarliðið á góðu
róli fyrir leikjahléð. Sigrar á Val, Haukum og Fram í síðustu leikjum hleyptu svo sannarlega miklum krafti í áhorfendur sem að vanda voru
frábærir og tóku virkan þátt í leikjunum.

Áhorfendur taka virkan þátt í leikjum liðsins enda stemmingin frábær í stúkunni
