Akureyrarliðið skemmti landsmönnum svo sannarlega í beinni útsendingu á RÚV á laugardaginn með frábærum leik gegn FH. Næsti
kafli í ævintýrinu fer fram fimmtudaginn í Höllinni þegar helstu mótherjar okkar, HK mæta eftir að hafa hitað upp í Rússlandi
um síðustu helgi.
Allir þeir sem skemmtu sér við sjónvarpið fá nú kjörið tækifæri til að upplifa stemminguna á eigin skinni með
því að mæta í Höllina. Það er fátt sem jafnast á við að taka þátt í stemmingunni í troðfullri
Höll og fylgjast með tveim bestu og skemmtilegustu liðum landsins kljást á vellinum.

Leikmenn Akureyrar mæta til leiks, yfirvegaðir eins og vanalega, tilbúnir til að gera sitt besta og það þurfum við stuðningsmennirnir að gera
líka. Það sást vel í sjónvarpsleiknum að stuðningsmenn Akureyrarliðsins á Höfuðborgarsvæðinu tóku virkan
þátt í leiknum og yfirgnæfðu gjörsamlega FH-ingana. Nú reynir fyrir alvöru á stuðningsmennina hér fyrir norðan að sýna
hvað í þeim býr og hver er munurinn á heimavelli og útivelli. Ef það er ekki ástæða núna þá spyr maður sig
hvenær?

Þegar staðan í deildinni er skoðuðu sést að Akureyrarliðið er búið að sigra HK, Fram og FH öll á útivelli. Þetta
eru einmitt liðin sem eru í 2. 3. og 4. sæti N1 deildarinnar og nú skuldum við strákunum einfaldlega að troðfylla Höllina og berjast með þeim
hér á heimavelli. Fyrsta tækifærið til þess er einmitt klukkan 19:00 á fimmtudaginn og örugglega vissara að mæta tímanlega
því búast má við miklu fjölmenni. Höllin verður opnuð klukkan 18:15.

Hinn magnaði kynnir hússins lofar ólýsanlegri stemmingu og lumar á nýjungum sem setji ný viðmið fyrir aðra kynna í íslenskum
handbolta, ekki missa af því!