Akureyri - Fram í Íþróttahöllinni í dag, miðvikudag

Það gengur ekki lítið á í handboltanum þessa dagana, magnaður leikur gegn FH í síðustu viku og í dag, miðvikudag er komið að stærsta heimaleiknum til þessa þegar Fram liðið mætir í Íþróttahöllina. Að þessu sinni er brugðið út af vananum og leikið á miðvikudegi, það er því rétt að hnippa í kunningjana og minna þá á breytingu frá venjunni.

Stuðningsmannaklúbburinn:
Við ætlum að gera sérstaklega vel við meðlimi stuðningsmannaklúbbsins að þessu sinni. Venjulega er standandi borðhald fyrir leik en að þessu sinni verða dúkuð borð og menn geta setið og gætt sér á dýrindis fiskisúpu og eitthvað hressandi með.  Kaffimeðlætið í hálfleik verður líka í veglegri kantinum.
Gleymið ekki að hafa með ykkur stuðningsmannaskírteinið!

En aðeins um mótherja okkar í leiknum:
Fram liðið byrjaði N1 deildina með miklum látum og hefur setið í toppsætinu allt fram í síðustu umferð þannig að það er ekkert smálið sem er væntanlegt í Höllina.
Framliðið fékk nýjan þjálfara fyrir tímabilið, Einar Jónsson sem hefur undanfarin ár stýrt kvennaliði Fram með miklum glæsibrag og gerir raunar enn. Þá fékk Fram liðið öfluga leikmenn í hópinn fyrir tímabilið. Þar skal fyrstan nefna landsliðsmanninn Ingimund Ingimundarson sem hefur heldur betur rifjað upp þekkta sóknartakta upp á síðkastið til viðbótar við kröftugan varnarleik sem alþjóð þekkir með landsliðinu.

Þá komu tveir lykilmenn Gróttu í herbúðir Framara, þeir Sigurður Eggertsson sem er einn alskemmtilegasti leikmaður deildarinnar og línutröllið Ægir Hrafn Jónsson en báðir hafa áður komið við sögu með Valsliðinu.

Ekki má gleyma markverðinum gamalkunna Sebastian Alexanderssyni sem hefur sýnt í vetur að lengi lifir í gömlum glæðum.


Ingimundur, Sigurður, Ægir Hrafn og Sebastian

Fram liðið er sem sé geysilega vel skipað og hefur á að skipa mjög breiðum leikmannahópi. Fyrir utan þá sem áður eru nefndir hafa skyttan Róbert Aron Hostert og hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson verið atkvæðamestir í markaskorun liðsins.
Leikstjórnandinn Halldór Jóhann Sigfússon er reynsluboltinn í liðinu og þá hefur liðið endurheimt úr meiðslum Sigfús Pál Sigfússon, betur þekktur sem Siffi en hann er einn alskemmtilegasti leikstjórnandinn í íslenska boltanum þegar hann er heill heilsu.

Það er því hægt að lofa fjörugum leik á miðvikudaginn þar sem ekkert verður gefið eftir, Akureyri ætlar sér klárlega að klifra upp stigatöfluna og mun ekki sætta sig við neitt nema sigur í þessum leik.