Akureyri - FH á fimmtudag kl. 19:00

Akureyri tekur á móti FH á fimmtudaginn klukkan 19:00 í KA-Heimilinu. Liðin eru á svipuðum slóðum í deildinni og ljóst að þetta verður hörkuslagur eins og alltaf milli þessara liða. Akureyri fékk slæma útreið gegn hinu Hafnarfjarðarliðinu á mánudaginn en strákarnir ætla að kvitta fyrir þann leik á heimavelli á fimmtudagskvöldið. Strákarnir þurfa á þínum stuðningi að halda og því um að gera að mæta og styðja þá til sigurs, áfram Akureyri!

Þjálfari FH er líkt og í fyrra, Akureyringurinn Halldór Jóhann Sigfússon og í leikmannahópnum eru tveir leikmenn sem stigu sín fyrstu handboltaskref hér fyrir norðan og léku með Akureyri áður en þeir gengu til liðs við FH. Þetta eru leikstjórnandinn Ásbjörn Friðriksson og línumaðurinn Daníel Matthíasson.


Halldór leggur sínum mönnum lífsreglurnar

Ási 

Þegar liðin mættust í fyrstu umferð vann FH eins marks sigur 28-27, eftir að hafa leitt með sex mörkum í hálfleik 18-12. Nú þarf að svara fyrir þann leik.
Hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson er langmarkahæstur FH inga það sem af er, með 88 mörk, Ásbjörn er næstur með 43 mörk og þriðji markahæsti leikmaður FH er Benedikt Reynir Kristinsson með 31 mark.