Áframhald verður á samstarfi KA og Þórs um sameiginlegt kvennalið í handboltanum undir nafninu KA/Þór. Búið er að gera samning við alla leikmenn liðsins fyrir utan að Erla Hleiður Tryggvadóttir leggur skóna á hilluna. Þá verða þeir Jónatan Magnússon og Þorvaldur Þorvaldsson áfram þjálfarar liðsins.
Þetta eru frábærar fréttir enda náði liðið góðum árangri á nýliðnu tímabili en liðið endaði í 2. sæti 1. deildar með jafn mörg stig og Fjölnir sem varð Deildarmeistari. Þá komst liðið í úrslit umspilsins um laust sæti í efstu deild en tapaði þar gegn Selfyssingum.
Nú þegar búið er að tryggja áframhaldandi veru núverandi leikmanna liðsins hyggur liðið á styrkingu og verður mjög gaman að fylgjast með stelpunum á komandi tímabili, áfram KA/Þór!