Æfingatafla handknattleiksdeildar 2024-2025

Handbolti

Handboltinn er að fara á fullt og hefjast æfingar samkvæmt æfingatöflu mánudaginn 26. ágúst næstkomandi. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem hafa áhuga á að kíkja á æfingu og prófa þessa stórskemmtilegu þjóðaríþrótt íslendinga.

Handboltinn kynnir í fyrsta sinn árgjöld, þ.e.a.s. að tímabilið er heilt ár. Frá ágúst 2024 til júlí 2025 með fyrirframuppgefnum sumarfríum, jólafríum og öðru slíku. Þetta þýðir að ekki þurfi sérstaklega að skrá á sumar eða haustæfingar og fólk getur séð á dagatali deildarinnar sem gefið verður út á næstu dögum hvenær er frí frá hefðbundnum handboltaæfingum. Æfingataflan sem tekur gildi núna 26.ágúst gildir út maí, og svo verða aðrir æfingatímar næsta sumar. 

Eins og við kynntum í gær er nýr yfirþjálfari handknattleiksdeildar KA hann Svavar Ingi Sigmundsson, iðulega kallaður Svabbi. Síminn hjá honum er 864-8899 og tölvupóstfangið svavar@ka.is.

Ekki hika við að hafa samband ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir. Annars fara öll samskipti í gegnum Sportabler. Styrktarþjálfari er Egill Ármann Kristinsson.


Smelltu á töfluna til að sjá hana stærri

Æfingagjöld o.fl.

  • Skráning iðkenda, greiðsla æfingagjalda og öll upplýsingamiðlun fer nú fram í gegnum Sportabler
  • Kerfið er afar einfalt í notkun og ef einhver lendir í vandræðum með kerfið bendum við á þjónustuver hjá Sportabler.
  • Með því að færa æfingagjöldin yfir einföldum við starfið með því að hafa allt á sama stað, gjöld, skráningar og upplýsingamiðlun.
  • Aðstandendur hafa góða yfirsýn yfir stöðu skráninga í Sportabler appinu.
  • Systkinaafsláttur er 10% og millideildaafsláttur hjá KA er 10%. Kerfið sér um að reikna afsláttinn eins og við á.

Smellið á https://sportabler.com/shop/KA til að fara á skráningarsíðu KA.

 

Æfingagjöld tímabilið 2024-2025

     
flokkur upphæð  
3. kk 107.500    2 styrktaræfingar innifaldar
3. kvk 107.500    2 styrktaræfingar innifaldar
4. kk 105.000    1 styrktaræfing innifalin
4. kvk 105.000    1 styrktaræfing innifalin 
5. kk 88.550     
5. kvk 88.550     
6. kk 79.500     
6. kvk 79.500     
7. kk 76.500     
7. kvk 76.500     
8. kk 66.000     
8. kvk 66.000     
     
 

 Almennt um æfingagjöld hjá yngri flokkum KA og KA/Þórs í handbolta.

Skilyrði er að skráning sé framkvæmd í upphafi tímabils.
Almennt eru leyfðir prufutímar í samkomulagi við þjálfara.
Mikilvægt er að hafa samband við Unglingaráð ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkandans.
Ef iðkandi hættir á miðju tímabili eru gjöldin ekki endurgreidd. Hægt er að sækja um undanþágu frá þessu til Unglingaráðs. Ekki er heimilt að endurgreiða Tómstundaávísun Akureyrarbæjar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is