4. flokkur KA í Bikarúrslitum um helgina

Strákarnir eru komnir í bikarúrslitin
Strákarnir eru komnir í bikarúrslitin
4. flokkur KA í handbolta teflir fram þremur liðum í vetur í drengjaflokki, tveimur liðum á eldra ári og einu á yngra ári en alls eru 29 drengir að æfa í flokknum. Þjálfarar eru þeir Andri Snær Stefánsson og Jón Heiðar Sigurðsson.
 
A-lið 4. flokks tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar með flottum sigri á Fylki í undanúrslitum, 23-19 í KA-Heimilinu. Staðan var 11-12 fyrir Fylki í hálfleik en gulir KA drengir léku við hvurn sinn fingur í þeim síðari og tryggðu sér leikinn um gullið sem leikinn verður í Laugardalshöllinni sunnudaginn 28. febrúar kl. 13:00.
 
Að sjálfsögðu hvetjum við alla KA-menn til að fjölmenna í Laugardalshöll, mæta í gulu og hvetja strákana í baráttunni á sunnudag kl. 13:00. Áfram KA!
 
Fyrir ykkur sem ekki komist á leikinn sjálfan þá verður hann sýndur í beinni útsendingu á SportTV.
 
Meðfylgjandi er mynd af KA-1 sem tekin var á æfingu í dag.
 
Efri röð frá vinstri: Jón Heiðar Sigurðsson þjálfari, Ágúst Elfar Ásgeirsson, Jónatan Marteinn Jónsson, Brynjar Valur Valgeirsson, Davíð Matthíasson, Andri Snær Stefánsson þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Jón Ellert Magnússon, Bjarki Freyr Árnason, Dagur Gautason, Almar Jóhannsson, Starri Bernharðsson og Sveinn Áki Ólafsson.
 
Á myndina vantar Ottó Björn Óðinsson, Angantý Mána Gautason og Frey Jónsson.