Flýtilyklar
13 lið frá KA og KA/Þór í eldlínunni í Kórnum
14.03.2025
Handbolti
Það var mikið líf og fjör í Kórnum í Kópavogi um síðustu helgi er stórt handboltamót fyrir 7. flokk fór fram. Fjölmargir krakkar frá KA og KA/Þór mættu á svæðið og léku listir sínar gegn jafnöldrum sínum en vegna vetrarfrís í grunnskólum Akureyrar var einnig mikill fjöldi foreldra á svæðinu sem myndaði skemmtilega stemningu.
Krakkarnir í 7. flokki eru fædd árin 2015 og 2016 og sáust heldur betur magnaðir taktar en alls léku 13 lið á vegum KA og KA/Þórs á mótinu og gaman að sjá kraftinn í okkar öflugu iðkendum.
Sporthero var á svæðinu og myndaði öll liðin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir hópmyndirnar. Smelltu á mynd til að sjá hana stærri: