Um helgina fór fram Íslandsmótið í strandblaki í Kjarnaskógi á Akureyri en blakdeild KA sá um umsjón mótsins. Veðrið lék við keppendur og voru aðstæður algjörlega til fyrirmyndar. KA-TV sýndi frá mótinu sem og gerði þetta skemmtilega samantektarmyndband frá úrslitaleikjunum.
Alls var leikið í þremur deildum kvennamegin og í einni hjá körlunum og var gríðarleg spenna þegar kom að úrslitaleikjunum á sunnudeginum. Hér má sjá verðlaunahafana í deildunum.
1. deild karla
1. sæti Austris Bukovskis og Sigþór Helgason
2. sæti Karl Sigurðsson og Arnar Halldórsson
3. sæti Arnar Már Sigurðsson og Filip Pawel Szewczyk
1. deild kvenna
1. sæti Velina Apostolova og Perla Ingólfsdóttir
2. sæti Heiðbjört Gylfadóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir
3. sæti Birna Baldursdottir og Dýrleif Hanna Sigmundsdóttir
2. deild kvenna
1. sæti Helga Guðrún Magnúsdóttir og Sólveig Jónasdóttir
2. sæti Sandra B. Magnúsdóttir og Rasa Ratkuté
3. sæti Ragnheiður Eiríksdóttir og Ásdís Linda Sverrisdóttir
3. deild kvenna
1. sæti Birna Ruth Jóhannsdóttir og Hrönn Margrét Magnúsdóttir
2. sæti Telma Hrönn Númadóttir Charlotta Björk Steinþórsdóttir
3. sæti Ástrún Svala Óskarsdóttir / Þórhildur Hrafnsdóttir
Í lok móts voru stigameistarar einnig krýndir en Perla Ingólfsdóttir var stigameistari kvenna og Janis Novikovs var stigameistari karla. Við óskum að sjálfsögðu öllum verðlaunahöfum til hamingju og þökkum fyrir hve vel mótið tókst.