Strákarnir stóðust prófið í Árbænum

Blak
Strákarnir stóðust prófið í Árbænum
Mikilvægur sigur í kvöld (mynd: Egill Bjarni)

KA sótti Fylki heim í Mizunodeild karla í blaki í kvöld en fyrir leikinn voru Árbæingar stigalausir en KA hafði unnið góða sigra í síðustu tveimur leikjum sínum. Það stefnir í hörku baráttu á toppi deildarinnar og ljóst að hvert einasta stig mun skipta máli þegar upp verður staðið í vor.

KA lék án þeirra Miguel Mateo Castrillo og Arnars Más Sigurðarssonar en þess í stað fengu yngri leikmenn að spreita sig og þeir stóðu fyrir sínu.

Það voru þó Fylkismenn sem hófu leikinn betur og þeir leiddu fyrri hluta fyrstu hrinu en með frábærum kafla sneru strákarnir dæminu við og náðu mest fimm stiga forystu. Strákarnir sigldu svo 20-25 sigri heim og komust þar með í 0-1.

Aftur voru það heimamenn sem byrjuðu betur í upphafi annarrar hrinu en rétt eins og áður kom frábær kafli KA liðsins sem sneri dæminu við og úr því að vera þremur stigum undir komst KA mest í sjö stiga forskot. Eftir það var sigurinn aldrei í hættu og vannst að lokum 18-25 sigur og strákarnir þar með komnir í lykilstöðu fyrir þriðju hrinu.

Allt annað var uppi á teningunum í þriðju hrinu því nú komst KA í 1-6 áður en Fylkismenn sem voru með bakið uppvið vegg komu til baka. Skyndilega var staðan orðin 17-9 fyrir Fylki og algjört hrun á spilamennsku okkar liðs. Fylkisliðið vann hrinuna svo 25-16 og vann þar með sína aðra hrinu í vetur.

Það var því ansi mikilvægt að strákarnir myndu klára fjórðu hrinu til að sækja öll stigin í kvöld en heimamenn voru heldur betur komnir í gang og úr varð spennuþrungin fjórða hrina. Jafnt var á nánast öllum tölum fyrri hluta hrinunnar uns KA náði þriggja stiga forystu í 11-14 og seinna sex stiga forystu í 15-21.

En Fylkismenn lögðu ekki árar í bát og eftir að KA var í 21-24 stöðu knúðu þeir fram upphækkun og gríðarleg spenna í loftinu. Það fór svo að strákarnir okkar náðu að klára dæmið 27-29 og leikinn þar með 1-3.

Allir leikmenn KA sem voru á skýrslu fengu að spreita sig og var ákaflega jákvætt að sjá strákana fá tækifærið. André Collins var stigahæstur með 10 stig, Alexander Arnar Þórisson gerði 9, Oscar Fernández 7, Sölvi Páll Sigurpálsson 6, Benedikt Rúnar Valtýsson 5, Hermann Biering Ottósson 4 og Filip Pawel Szewczyk 3. Þá lék Draupnir Jarl Kristjánsson til móts við Filip í stöðu uppspilara og stóð sig með prýði.

KA er þar með komið með 9 stig eftir fyrstu fjóra leiki vetrarins og hefur sótt öll stigin sem í boði eru eftir Covid pásuna. Næsti leikur er strax á miðvikudaginn er Afturelding mætir norður og má búast við spennandi leik en bæði lið ætla sér stóra hluti í vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is