Líklega má kenna þreytu, meiðslum og veikindum um tap KA-manna og því voru Stjörnumenn nokkuð verðskuldaðir sigurvegarar en önnur hrina
leiksins reyndist örlagarík fyrir KA.
KA byrjaði betur og vann fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 25-21. KA byrjaði betur í næstu hrinu og komst í 10-5 en Stjörnumenn komu sterkir til baka og
jöfnuðu 10-10. eftir það var jafnt á felstum tölum og eftir æsispenannandi lokamínútur vann Stjarnan hrinuna 28-30 þar sem
Stjörnumenn fóru á kostum í vörninni. Þessi hrina hefði getað lent hvoru megins sem var og má segja að hún hafi ráðið
úrslitum. Eftir þetta dró af KA-mönnum og Stjarnan gekk á lagið í 3 hrinunni og vann hana 25-20 og svo fjórðu hrinuna 25-16 og landaði
bikarmeistaratitlinum enn á ný.
KA strákarnir spiluðu frábærlega í fyrstu tveimur hrinunum og það gerðu Stjörnumenn líka. Reynsluboltar meðal áhorfenda töluðu um að í leikurinn væri einn sá besti sem boðið hefði verið upp á í Íslensku blaki fyrr og síðar.
Davíð Búi Halldórsson gat ekki beitt sér sem skyldi í leikjum helgarinnar enn hann tognaði illa í magavöðva fyrir nokkru síðan, Davíð stóð engu að síður fyrir sínu í úrslitaleiknum sérstaklega í móttökunni og skoraði einnig töluvert af stigum í sókninni. Piotr Kempisty hefur verið veikur með flensu alla vikuna enn hann stóð sig engu að síður eins og hetja í leiknum sérstaklega framan af en nokkuð dró af honum þegar leið á leikinn enda bar hann lið KA uppi í leiknum kvöldið áður gegn ÍS. Filip Szewczyk átti góða spretti í uppspilinu og einnig stóðu þeir bræður Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir sig með ágætum. Hilmar Sigurjónsson átti góða spretti en átti í vandræðum með sterka blokkara Stjörnunnar í sókninni. Hann átti margar af góðar uppgjöfum í leiknum. Valgeir Valgeirsson kom inn í leikinn fyrir Hilmar og stóð sig vel en átti einnig í vandræðum með að komast fram hjá blokk Stjörnumanna. Árni Björnsson tók mjög vel á móti í leiknum og átti margar frábærar varnir.
Hjá Stjörnunni voru Róbert Hlöðversson, Wojtek Bachorski og Emil Gunnarsson sterkastir en einni átti Aleksander Simeonov góða spretti. Í heild átti Stjörnuliðið allt mjög góða dag.
Nú er bara að bíta í skjaldarrendur og reyna að safna kröftum fyrir úrslitarimmu Íslandsmótsins. KA á þar eftir tvo leiki gegn Stjörnunni sem verða leiknir eftir tvær vikur.
Síðan er sjálf úrslitakeppnin eftir en þar verða Þróttarar líklegast andstæðingar KA í 4-liða úrslitum en Stjarnan þarf aðeins að vinna 2 hrinur til viðbótar til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en þeir eiga eftir að spila í tvígang við KA og einu sinni við ÍS. Ef Stjarnan vinnur ÍS á nú næstkomandi miðvikudag tryggja þeir sér deildarmeistaratitilinn. Það er hins vegar mikilvægt fyrir KA að ná að vinna alla vega 3 hrinur í síðustu leikjunum við Stjörnuna og tryggja sér 2. sætið í deildinni og um leið heimleikjaréttin í fyrri umferðinni um Íslandsmeistaratitilinn.
Nr. | Félag | Leik | U | T | Hrinur | Skor | Nettó | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1. | Stjarnan | 13 | 12 | 1 | 38: 13 | 1165:1008 | 157 38 | |
2. | KA | 14 | 10 | 4 | 33: 13 | 1062: 948 | 114 33 | |
3. | Þróttur | 15 | 10 | 5 | 32: 18 | 1176:1031 | 145 32 | |
4. | ÍS | 14 | 2 | 12 | 13: 37 | 1003:1178 | -175 13 | |
5. | HK | 14 | 1 | 13 | 5: 40 | 871:1112 | -241 5 |
Þess má geta vegna skrifa um fjölmiðlaumfjöllun undanfarið að engin frétt er um úrslitin á ruv.is, engin á visir.is en klausa um undanúrslitin á mbl.is. Gott hjá mbl :o)