Blak hefur verið stundað á Íslandi síðan fyrir 1970 eða í rúm 40 ár og blakáhugamenn í landinu skipa án efa vel á anna tug þúsunda. Fjöldi erlendra leikmanna spilar með íslenskum liðum og gæði íþróttarinnar hér á landi hefur vaxið hröðum skerfum undanfarin ár. Eins og kemur fram á vef Blaksambandsins www.bli.is var fyrst haft samband við RÚV um málið í desember 2007 en leikirnir hafa verið sýndir í beinni útsendingu á annan áratug.
Við KA menn HÖRMUM þessa niðurstöðu íþróttadeildar RÚV og hvetjum starfsmenn deildarinnar til að ganga til samninga við Blaksambandið og tryggja beina útsendingu bikarleikjanna í blaki í framtíðinni svo þessi uppákoma endurtaki sig ekki.
- - -
Að lokum hvetjum við blakáhugamenn til að fjölmenna á leikina í Laugardalshöllinni á laugardag og sunnudag. Við lofum hörkuleikjum þar
og frábæru blaki.