Piotr er íþróttamaður KA 2009!
Á KA - deginum í dag, sem fram fór í tilefni 82. ára afmæli KA, var íþróttamaður KA kjörinn. Í ár var
Piotr
Slawomir Kempisty kjörinn. Piotr var valinn besti leikmaður 1. deildar karla 2009 af leikmönnum og þjálfurum deildarinnar
er hann stigahæstur í MIKASA deild karla eftir fyrstu fimm umferðir þessa keppnistímabils. Í öðru sæti var Haukur Heiðar
knattspyrnumaður og í því þriðja var Helga Hansdóttir júdókona en þau hafa bæði staðið sig virkilega vel á
árinu. Heimasíðan óskar þessu frábæra keppnisfólki til hamingju með titlana!
Þau 3 efstu, f.v. Hans Rúnar (fyrir dóttur sína Helgu í 3. sæti), Piotr Slawomir í 1. sæti og Haukur Heiðar
í 2. sæti.
Myndirnar tók Þórir Tryggvason.