Efri röð frá vinstri: Ævarr Freyr Birgisson, Sigurjón Karl Viðarsson, Benedikt Rúnar Valtýsson, Filip Szewczyk. Neðri röð frá vinstri: Gunnar Pálmi Hannesson, Ásta Lilja Harðardóttir, Vigfús Jónbergsson, Valþór Ingi Karlsson. Á myndina vantar: Sævar
Þjálfarar U19 landsliðanna í blaki, þeir Filip Szewczyk og Emil Gunnarsson, hafa valið leikmenn fyrir Norðurlandamót U19 sem fram fer í Ikast
í Danmörku um miðjan október. Átta leikmenn frá Blakdeild KA eru í hópunum, 7 drengir og 1 stúlka. Þessir leikmenn eru mjög ungir
og eiga allir drengirnir einnig sæti í U17 landsliðinu. Þessi fjöldi sýnir vel hversu góðum árangri þessir ungu leikmenn hafa náð
og er mikil viðurkenning fyrir blakdeildina og Filip sem hefur verið þjálfari hjá KA undanfarin ár. Þeir leikmenn sem valdir voru eru Benedikt Rúnar
Valtýsson, Gunnar Pálmi Hannesson, Ævarr Freyr Birgisson, Valþór Ingi Karlsson, Sævar Karl Randversson, Sigurjón Karl Viðarsson, Vigfús
Jónbergsson og Ásta Lilja Harðardóttir.
Þjálfarar U17 landsliðanna í blaki, þær Natalia Ravva og Miglena Apostolova, hafa valið í leikmenn fyrir Norðurlandamót U17 sem fram fer
í Kettering á Englandi um mánaðamótin okt/nóv. Átta leikmenn frá Blakdeild KA eru í hópunum, 7 drengir og 1 stúlka.
Þeir leikmenn sem valdir voru eru Benedikt Rúnar Valtýsson, Gunnar Pálmi Hannesson, Ævarr Freyr Birgisson, Valþór Ingi Karlsson, Sigurjón Karl
Viðarsson, Sævar Karl Randversson, Vigfús Jónbergsson og Sóley Ásta Sigvaldadóttir.
Frábær árangur hjá þessum krökkkum og verður gaman að fylgjast með þeim áfram.