Karlalið KA vann Stjörnuna 3-2 í hörku tveggja tíma leik í KA heimilinu í dag. Stigahæsti maður KA var Piotr Kempisty með 32 stig en
Hilmar Sigurjónsson skoraði 18 stig.
KA-Stjarnan 3-2 (25-18, 23-25, 25-21, 16-25, 15-11)
KA menn ætla að fá sem mest út úr Íslandsmótinu í ár því þeir bjóða upp á hvern maraþonleikinn
á fætur öðrum. Áhorfendur eru því ekki sviknir og nú þegar tónlistarstjóri leikjanna er hættur að spila upptökur af
hrærivéla- og þvottavélahljóðum þá getur maður ekki beðið um meira.
Fyrsta hrinan var í járnum lengst af en KA seig framúr með öruggri sókn þar sem Hilmar og Piotr skiluðu flestum boltum beint í gólf.
Vannst hún að lokum nokkuð örugglega 25-18.
Í annari hrinunni byrjaði KA ekki nógu vel og liðið var alltaf aðeins á eftir Stjörnunni. Dómararnir buðu upp á smá
grínþátt um miðja hrinuna og virtist það kveikja í Srjörnustrákunum. Í stöðunni 14-16 fór allt í baklás
hjá KA og móttakan var eins og í hefðbundnum leikfimitíma þar sem boltinn dettur ógjarnan beint í gólf. Breyttu Stjörnumenn
stöðunni í 14-22 og hrinan virtist töpuð. KA komst þó aftur á skrið og saxaði á forskotið. Guli herinn kom sér í 23-24
eftir að Jóhann var búinn að taka þrjár uppgjafir í röð. Sú fjórða fór hins vegar hárfínt útaf og
Stjarnan hrósaði happi og sigri í hrinunni 23-25.
Þriðja hrinan var alveg ótrúlega löng og vel spennandi. KA virtist ætla að sigla henni nokkuð örugglega í land með Daníel fremstan
í flokki. Hann kom ískaldur inn í hrinuna og tók fljótlega til sinna ráða. Drengurinn fór hreinlega á kostum í miðjublokkinni og
minnti hressilega á að hann er sonur pabba síns. Staðan var 11-6 en þá komu nokkrar lélegar sóknir og á einu augabragði gat að
líta 15-16 á stigatöflunni. Hilmar sá til þess að KA seig framúr á ný og var þetta hrinan hans. Hann skilaði sínum
sóknum og KA vann að lokum 25-21.
Fjórða hrinan var fáránlega leikin að hálfu KA og má sæta furðu að lið í toppbaráttu geti leyft sér það sem
KA menn sýndu í henni. Allt byrjaði þetta reyndar vel því KA komst í 5-0 og 6-1. Þá gerði liðið afdrifarík mistök
þegar frelsinginn fór ekki útaf fyrr en of seint og Stjarnan fékk boltann. Staðan breyttist snarlega í 7-8 og 8-12 og virtust menn bara farnir í
fýlu og hreinlega hættir. Einmitt þarna tóku dómararnir annan grínþátt og Stjörnumenn fóru í gang með það sama.
Kannski ætti að banna dómurum að hafa húmor fyrir sjálfum sér svo KA liðið fari ekki út af sporinu. Stjarnan tók hrinunna létt
16-25 og því þurfti odd til að fá sigurvegara.
Oddurinn gæti alveg eins heitið Piotr því sá pólski hreinlega tók völdin í lokahrinunni og skellti sem óður væri. KA komst
strax yfir og var 8-4 þegar skipt var um vallarhelming. Stjarnan minnkaði í 8-7 en þá komu tvær mikilvægar blokkir frá Val og Filip. Stjarnan
minnkaði muninn á ný í 11-10 en Piotr skilaði rest og KA vann að lokum 15-11.
Stig KA og tölfræði úr leiknum:
Nafn
|
Stig
|
S-B-U
|
Uppgjöf
|
Móttaka
|
Sókn
|
Blokk
|
Vörn
|
Piotr
|
32
|
30-0-2
|
2-8-6
|
15-5-1
|
30-11-10
|
0-0-1
|
5
|
Hilmar
|
18
|
18-0-0
|
0-7-4
|
2-1-0
|
18-8-10
|
0-3-0
|
5
|
Daníel
|
10
|
2-7-1
|
1-7-1
|
0-0-0
|
2-2-1
|
7-3-1
|
0
|
Valur
|
7
|
5-2-0
|
0-10-1
|
0-0-0
|
5-6-0
|
2-4-1
|
0
|
Jóhann
|
6
|
3-1-2
|
2-8-2
|
1-2-1
|
3-3-2
|
1-0-0
|
2
|
Filip
|
5
|
0-3-2
|
2-21-4
|
0-0-0
|
0-5-2
|
2-0-1
|
4
|
Kristján
|
1
|
1-0-0
|
0-9-0
|
2-4-0
|
1-2-2
|
0-0-0
|
2
|
Árni
|
0
|
0-0-0
|
0-0-0
|
38-10-2
|
0-0-0
|
0-0-0
|
6
|
Arnar Páll
|
0
|
0-0-0
|
0-3-1
|
0-0-0
|
0-0-0
|
0-0-0
|
0
|
Andri Már
|
0
|
0-0-0
|
0-1-0
|
0-0-0
|
0-0-0
|
0-0-0
|
0
|