Karlaliðið KA stóð sig vel á mótinu þrátt fyrir nokkrar breytingar á liðinu frá því í fyrra en tviburarnir öflugu Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir hafa yfirgefið liðið og spila í vetur með danska liðinu Aalborg HIK. Á móti kemur að KA liðið hefur fengið nýjan ungan og mjög efnilegan leikmann í sínar raðir. Sá heitir Jóhann Eiríksson og kemur frá Ólafsvík og er bróðir Hilmars Sigurjónssonar sem hefur verið einn af burðarásum KA liðsins síðustu 4 árin. Von er á fleiri ungum og efnilegum leikmönnum til KA en meira um það síðar.
KA liðið vann alla sína leiki á mótinu 2-0 og var það helst lið Stjörnunnar sem stríddi liðinu. Liðin í Reykjavík virðast töluvert breytt frá síðasta ári og bæði Stjarnan og Þróttur Reykjavík hafa misst sterka leikmenn.
1. deild karla | |||||
Laugardagur 26. september 2009 | |||||
Tími | Deild | Lið A | Lið B | Úrslit | Hrinur |
16:15 | 1. Kk | KA | Afturelding | 2-0 | 25-13, 25-16 |
17:45 | 1. Kk | HK -MFl.KK | KA | 0-2 | 21-25, 22-25 |
18:30 | 1. Kk | KA | Stjarnan | 2-0 | 25-23, 25-23 |
20:00 | 1. Kk | Þróttur R | KA | 2-0 | 19-25, 19-25 |
Kvennalið KA mun í vetur spila í 1. deild eftir tveggja ára veru í 2. deild. Liðið spilaði þó í 2. deild á haustmótinu þar sem nokkrir af eldri leikmönnum liðsins áttu ekki heimangengt. Liðinu gekk ljómandi vel og vann alla sína leiki utan einn - fyrsta leikinn við Álftanes sem tapaðist 2-0
2. deild kvenna | ||||||
Laugardagur 26. september 2009 | ||||||
Tími | Deild | Lið A | Lið B | Úrslit | ||
09:30 | 2. Kvk | KA | Álftanes A | 0-2 | 19-21, 18-21 | |
11:00 | 2. Kvk | umfg | KA | 1-2 | 21-16, 12-21, 8-21 | |
13:15 | 2. Kvk | KA | KMK | 2-0 | 21-13, 21-12 | |
14:45 | 2. Kvk | KA | HK utd. | 2-0 | 21-19, 21-15 | |
15:30 | 2. Kvk | ÍK B | KA | 1-2 | 13-21, 22-20, 12-15 |