KA-Stjarnan 3:2 (25:22, 18:25, 25:23, 19:25, 15:10)
KA vann mikilvægan sigur á Stjörnuni fyrir í kvöld í mjög jöfnum og spennandi leik þar sem bæði lið sýndu flotta takta.
KA-menn unnu fyrstu hrinuna 25:22 eftir að hafa náð góðum spretti undir lok hennar. Stjarnan svaraði með auðveldum sigri í þeirri næstu en þá voru heimamenn í tómu rugli og gerðu hver byrjendamistökin á fætur öðrum. Svo illa spilaði liðið að Marek þjálfari var orðinn alveg sótsvartur á hliðarlínunni. Fór hrinan 18:25.
Þriðja hrinan var sú mest spennandi og var jafnt nánast á öllum tölum upp í 15:15. KA tók þá smá kipp en Stjarnan minnkaði muninn í 24:23 áður en KA lokaði hrinunni með fínni sókn.
Stjarnan tók strax völdin í fjórðu hrinunni og skipti þar sköpum frábær hávörn Aleksanders Simeonov sem hreinlega lokaði á Piotr Kempisty aðalsmassara KA-manna. Fór svo að lokum að Stjarnan vann örugglega 19:25.
Í oddahrinunni tók KA strax frumkvæðið með flottri vörn jafnt upp við netið (og takið nú vel eftir) sem aftur á vellinum. Þeir gulklæddu komust í 8:4 og hleyptu Garðbæingum aldrei nálægt sér. Hrinunni lauk 15:10 og leiknum þar með 3:2.
Sóknarleikur KA var flottur í leiknum en kannski full fyrirsjáanlegur á köflum. Piotr Kempisty og Hilmar Sigurjónsson fóru þar á kostum lengstum en áttu að sjálfsögðu sína feila. Pjotr var sérlega beittur í uppgjöfunum og náði sex ásum. Till var flottur í móttökunni og skilaði sínum sóknum og uppgjöfum mjög vel. Filip var að spila nokkuð vel upp og skilaði mörgum stigum upp við netið. Tvíbbarnir áttu í mesta basli á miðjunni en tóku mikilvægar blokkir í oddahrinunni. Árni var ekki að sýna sitt besta í móttöku og vörn en það kom ekki að sök í dag. Valli kom sprækur inn af bekknum og skilaði sínu með sóma. Þess má geta að Davíð Búi var veikur í bælinu og var því ekki með. Hjá Stjörnunni var Aleksander Siemonov gríðarlega góður, var nánast hálft liðið en aðrir leikmenn áttu sínar rispur.
Stig KA í leiknum (sókn-hávörn-uppgjöf)
Piotr Kempisty | 24 | 18-0-6 |
Hilmar Sigurjónsson | 14 | 14-0-0 |
Till Wohlrab | 9 | 7-2-0 |
Hafsteinn Valdimarsson | 8 | 6-2-0 |
Kristján Valdimarsson | 8 | 5-3-0 |
Filip Szewczyk | 8 | 4-2-2 |
Valgeir Valgeirsson | 2 | 1-1-0 |