15.08.2007
Valgeir Valgeirsson (18 ára) sem lék með HK á síðasta tímabili hefur ákveðið að ganga til liðs við KA. Valgeir, sem er miðjusmassari, var í A-landsliðshópi karla sem tók þátt í smáþjóðaleikunum í sumar og er hann því mikill fengur fyrir KA liðið. Ljóst er að KA-liðið verður með mikla breidd í vetur enda þrír leikmenn bæst í hópinn frá síðasta tímabili og langt er síðan félagið hefur teflt fram jafn öflugu liði á Íslandsmótinu.