Töp gegn Þrótti Neskaupsstað

KA stúlkur töpuðu fyrir Þrótti frá Neskaupsstað í tveimur leikjum um helgina. Báðum leikjunum lauk 0-3 (13-25, 13-25 & 15-25 á föstudag og 18-25, 17-25 & 14-25 á laugardag) fyrir gestunum sem verma annað sætið í deildinni. Móttakan hjá heimaliðinu var afar slök í leikjunum tveimur og reyndist liðinu því erfitt að byggja upp almennilegar sóknir.Natalia Gomzila og Una Heimisdóttir léku best KA stúlkna sem sitja sem fyrr í fjórða og neðsta sæti deildarinnar.