Tvær mjög efnilegar stúlkur úr KA, Arnrún Eik Guðmundsdóttir og Unnur Árnadóttir, halda til Kettering á Englandi á morgun með U17 landsliðinu til þátttöku í NEVZA-móti. Þetta er mót fyrir lið í Norður-Evrópu og að þessu sinni taka þátt auk Íslands, Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Færeyjar og England.
Flottur árangur hjá þessum efnilegu KA-stúlkum.
Fylgjast má með mótinu á heimasíðu enska blaksambandsins http://volleyballengland.org/competitions/nevza_u17/nevza_2015