Flýtilyklar
KA/Þór þarf á þér að halda í stúkunni!
02.03.2020
Handbolti
Miðasalan á undanúrslitaleik KA/Þórs og Hauka í Coca-Cola bikar kvenna í handbolta er í fullum gangi. Liðin mætast miðvikudaginn 4. mars klukkan 18:00 í Laugardalshöllinni og við ætlum að styðja stelpurnar okkar áfram í úrslitaleikinn!
Miðasalan fer fram í gegnum tix.is og skiptir öllu máli að miðarnir séu keyptir í gegnum okkar slóð svo KA/Þór fái hluta af aðgangseyrinum. Slóðin okkar er: tix.is/kathor.
Þá verðum við með fría hópferð á leikinn ef næg þátttaka næst og þarf því að tryggja sér sæti með því að senda póst á agust@ka.is. Hlökkum til að taka yfir stúkuna og njóta bikarveislunnar, áfram KA/Þór!