KA/Þór þarf á þér að halda í stúkunni!

Handbolti
KA/Þór þarf á þér að halda í stúkunni!
Við þurfum á þér að halda í stúkunni!

Miðasalan á undanúrslitaleik KA/Þórs og Hauka í Coca-Cola bikar kvenna í handbolta er í fullum gangi. Liðin mætast miðvikudaginn 4. mars klukkan 18:00 í Laugardalshöllinni og við ætlum að styðja stelpurnar okkar áfram í úrslitaleikinn!

Miðasalan fer fram í gegnum tix.is og skiptir öllu máli að miðarnir séu keyptir í gegnum okkar slóð svo KA/Þór fái hluta af aðgangseyrinum. Slóðin okkar er: tix.is/kathor.

Þá verðum við með fría hópferð á leikinn ef næg þátttaka næst og þarf því að tryggja sér sæti með því að senda póst á agust@ka.is. Hlökkum til að taka yfir stúkuna og njóta bikarveislunnar, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is