Stelpurnar ætla sér sigur í Eyjum

Handbolti

KA/Þór sækir ÍBV heim í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta kvenna. Eyjakonur unnu 26-27 sigur í leik liðanna í KA-Heimilinu og því þurfa stelpurnar okkar að sigra í kvöld til að tryggja oddaleik í einvíginu.

Það má svo sannarlega búast við hörkuleik en liðin gerðu ævintýralegt jafntefli í deildarleiknum í Eyjum og svo unnu liðin sitthvorn leikinn í KA-Heimilinu með einu marki.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála og senda góða strauma, stelpurnar ætla sér að knýja fram oddaleik fyrir norðan á laugardaginn, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is