Skarpi á Sparkassen Cup með U19

Handbolti

Skarphéðinn Ívar Einarsson er í lokahóp U19 ára landsliðs Íslands í handbolta sem keppir á Sparkassen Cup milli jóla og nýárs en mótið fer fram í Þýskalandi. Þeir Heimir Ríkarðsson og Einar Jónsson stýra liðinu en hópurinn kemur saman 17. desember næstkomandi.

Þetta eru afar jákvæðar fréttir en Skarpi er einungis 17 ára gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið stórt hlutverk í meistaraflokksliði KA í vetur og er nú að fara á þetta fræga mót með U19 ára landsliðinu.

Við óskum okkar manni innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis í Þýskalandi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is