Sigur tryggir sæti í úrslitakeppninni

Handbolti

Það er heldur betur mikið undir í kvöld er KA tekur á móti FH í Olísdeild karla. KA liðið tryggir sér sæti í úrslitakeppninni með sigri og gott betur því liðið myndi stökkva upp í 3.-4. sæti deildarinnar með sigrinum. Að leik loknum eru aðeins tvær umferðir eftir í deildinni og ansi mikilvægt að koma sér í góða stöðu.

Miðasala á leikinn er í fullum gangi í Stubbsappinu en áhorfendum verður skipt upp í tvö svæði, A og B svæði. Ársmiðahafar mæta á A-svæði en stakir miðar eru til sölu í bæði svæðin í Stubbsappinu. Gengið er inn á svæði A um aðalinngang KA-Heimilisins en inn á svæði B í gegnum Rampinn við íþróttasalinn. Sjá útskýringarmynd hér fyrir neðan.

Almenn miðasala í KA-Heimilinu hefst svo klukkan 16:30. Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni útsendingu á KA-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is