Seinni leikur Vals og KA er í kvöld!

Handbolti

Valur og KA mætast í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar klukkan 20:00 að Hlíðarenda í kvöld. Valsmenn leiða með fjórum mörkum, 30-26, eftir fyrri leikinn en strákarnir okkar gefast aldrei upp og munu gefa sig alla í leik kvöldsins.

Til að slá Valsmenn út þurfa strákarnir því að vinna upp fjögurra marka forskotið og vinna helst með fimm mörkum í kvöld. Vinni KA með fjórum mörkum í kvöld ræður það hvort liðið skoraði fleiri mörk á útivelli.

Við hvetjum alla sem geta til að mæta og styðja strákana enda skiptir stuðningur ykkar öllu máli. Annars er leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is