Rut, Árni Bragi og Andri Snær best á lokahófi HSÍ

Handbolti
Rut, Árni Bragi og Andri Snær best á lokahófi HSÍ
KA/Þór kom sá og sigraði í vetur!

Lokahóf HSÍ fór fram í hádeginu í dag þar sem handboltaveturinn sem nú er nýliðinn var gerður upp. KA og KA/Þór voru heldur betur sigursæl og rökuðu til sín verðlaunum eftir frábæran vetur þar sem KA/Þór vann alla þrjá titlana sem í boði voru og KA steig mikilvægt skref áfram er liðið komst í úrslitakeppnina.

Rut Jónsdóttir var valin besti leikmaður Olísdeildar kvenna en Rut kom eins og stormsveipur inn í deildina eftir 12 ára atvinnumannaferil. Rut er ekki bara stórkostlegur leikmaður heldur lyftir hún samherjum sínum einnig upp á hærra plan og er heldur betur vel að verðlaununum komin. Ekki nóg með að vera valin besti leikmaðurinn fékk hún einnig Sigríðarbikarinn auk þess að vera valin besti sóknarmaðurinn.

Árni Bragi Eyjólfsson var valinn besti leikmaður Olísdeildar karla en Árni Bragi átti stórbrotið tímabil og má með sanni segja að hann hafi hrifið hug og hjörtu KA-manna í vetur. Loksins fengum við að upplifa kappann í gula og bláa búningnum og sá stóð heldur betur undir öllu því sem á hann var lagt í vetur. Árni rakaði heldur betur til sín verðlaununum í dag en hann varð markakóngur deildarinnar, var valinn besti sóknarmaður, fékk Valdimarsbikarinn og uppskar Háttvísisverðlaun HSÍ.

Andri Snær Stefánsson þjálfari KA/Þórs var valinn besti þjálfari Olísdeildar kvenna. Andri Snær tók við liðinu fyrir veturinn og endaði á að vinna alla titlana sem í boði voru. Fyrir veturinn í vetur hafði KA/Þór aldrei hampað stórum titli og afrekið magnaða því enn stærra.

Matea Lonac var valin besti markvörður Olísdeildar kvenna en Matea sýndi mikinn stöðugleika í vetur og fór á kostum. Hún var með 36,1% markvörslu í deild og úrslitakeppni sem er frábær tölfræði auk þess að vera frábær liðsfélagi.

Rakel Sara Elvarsdóttir var svo valin efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna en Rakel Sara sem er aðeins 18 ára gömul hélt áfram að stíga upp í vetur sem kristallaðist í úrslitakeppninni þar sem hún skoraði ófá mörkin á úrslitastundum leikjanna. Það er alveg klárt að framtíðin er björt hjá Rakel Söru sem fer á EM í Makedóníu með U19 í sumar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is