Flýtilyklar
Oddaleikurinn er á morgun! Fyllum húsið!
Á morgun, laugardag, fer fram hreinn úrslitaleikur um sæti í lokaúrslitum Íslandsmótsins í handbolta. KA/Þór fær ÍBV í heimsókn klukkan 15:00 og það er alveg ljóst að þetta verður hörkuleikur enda tvö frábær lið að mætast.
Liðin hafa unnið sitthvorn leikinn til þessa og ljóst að liðið sem vinnur á morgun fer áfram í úrslitaeinvígið þar sem lið Vals bíður. Stelpurnar okkar eru búnar að vera frábærar í vetur, eru Deildarmeistarar og Meistarar Meistaranna og eiga það svo sannarlega skilið að við mætum og styðjum þær áfram á stærsta sviðinu.
Það verður mikil stemning á svæðinu og meðal annars verða grillaðar pylsur fyrir leik og því um að gera að mæta tímanlega.
Miðasala á leikinn er í fullum gangi í Stubbsappinu en áhorfendum verður skipt upp í tvö svæði, A og B svæði. Ársmiðahafar mæta á A-svæði en stakir miðar eru til sölu í bæði svæðin í Stubbsappinu. Gengið er inn á svæði A um aðalinngang KA-Heimilisins en inn á svæði B í gegnum Rampinn við íþróttasalinn. Sjá útskýringarmynd hér fyrir neðan.
Almenn miðasala í KA-Heimilinu hefst svo klukkan 14:00. Fyrir þá sem komast ómögulega á þennan mikilvæga leik verður hann í beinni á Stöð 2 Sport. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA/Þór!