Flýtilyklar
Myndaveislur er KA lagði Þór í bikarnum
KA lagði nágranna sína í Þór að velli er liðin mættust í 32-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í handbolta í Höllinni í gær. Leikir liðanna verða iðulega jafnir og spennandi og varð engin breyting þar á í gær. En þegar mest á reyndi voru strákarnir okkar sterkari og sigldu heim 23-26 sigri.
Það var vissulega allt öðruvísi stemning í kringum leikinn en venjulega vegna Covid faraldursins og voru því engir áhorfendur leyfðir. Þess í stað horfðu bæjarbúar á liðin sín berjast í sjónvarpinu en þökk sé okkar frábæru ljósmyndurum þeim Þóri Tryggvasyni og Agli Bjarna Friðjónssyni fáum við að komast aðeins nær leiknum með myndaveislum þeirra frá herlegheitunum í gær.
Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum
Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum
Við kunnum þeim félögum bestu þakkir fyrir myndirnar og á sama tíma þökkum við ykkur KA-mönnum kærlega fyrir stuðninginn heiman úr stofu!