Flýtilyklar
Myndaveisla er KA/Þór fór á toppinn!
KA/Þór fékk ÍBV í heimsókn í Olísdeild kvenna í handbolta í gær en leikurinn var sá fyrsti í seinni umferðinni. Fyrir leik voru stelpurnar okkar jafnar Val og Fram á toppi deildarinnar með 10 stig en ÍBV var með 7 stig og gat því blandað sér hressilega inn í toppbaráttuna með sigri.
Fyrri leikur liðanna í Vestmannaeyjum var stál í stál og endaði með jafntefli og sama spenna einkenndi leik liðanna í gær. Bæði lið spiluðu öflugan varnarleik og gekk sóknarleikurinn því erfiðlega. Gestunum gekk þó betur að finna lausnir sóknarlega með öflugu skyttur sínar. Eyjakonur náðu þriggja marka forskoti í 4-7 er fyrri hálfleikur var hálfnaður og Andri Snær þjálfari hóf því að leika með aukamann í sókninni.
Eftir smá tíma fór það bragð að virka og stelpurnar voru á lokamínútunni í möguleika á að jafna í 9-9 fyrir hlé. En í tvígang gerðu stelpurnar sig sekar um klaufaskap sem ÍBV nýtti sér með tveimur mörkum yfir allan völlinn í autt markið og leiddi því 8-11 er liðin gengu til hálfleiks.
Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á leiknum og býður hér til myndaveislu frá leiknum. Við kunnum honum bestu þakkir fyrir framtakið.
Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum í gær
Fljótlega tókst þó að kvitta fyrir mistökin undir lok fyrri hálfleiks og var munurinn aftur orðinn eitt mark í upphafi síðari hálfleiks. En aftur tókst Eyjakonum að slíta sig frá og útlitið var heldur svart í stöðunni 13-17 og tæpar 20 mínútur til leiksloka.
En eins og við vitum öll þá býr hellingur í okkar magnaða liði og stelpurnar náðu að keyra aðeins upp hraðann og gerðu næstu fjögur mörk leiksins. Í kjölfarið var jafnt á öllum tölum og leikurinn skólabókardæmi um háspennu lífshættu.
Jafnt var 23-23 þegar lokamínútan gekk í garð og ÍBV með boltann. En þeim tókst ekki að nýta sína sókn og tók Andri Snær leikhlé er hálf mínúta lifði leiks. Það endaði með því að Aldís Ásta Heimisdóttir náði að koma boltanum á Önnu Þyrí Halldórsdóttur á línunni og hún uppskar vítakast. Ásdís Guðmundsdóttir skoraði af öryggi af punktinum og ÍBV tók leikhlé marki undir og 7 sekúndur eftir.
En nú var komið að gestunum að gera mistök undir lokin og ÍBV missti boltann klaufalega og missti þar með af tækifærinu á að jafna. KA/Þór vann þar með leikinn 24-23 og fagnaði sigrinum ógurlega!
Það sýnir gríðarlegan karakter að ná að snúa leik sem þessum gegn jafn öflugum andstæðing og ÍBV er. Stelpurnar leiddu leikinn í aðeins fjórar mínútur og 16 sekúndur en það er ekki spurt að því að leikslokum og gríðarlega sæt tvö stig staðreynd.
Á sama tíma gerði Valur jafntefli við Hauka og eru stelpurnar því einar á toppi deildarinnar uns Fram leikur gegn HK í dag og getur jafnað við KA/Þór á ný.
Ásdís Guðmundsdóttir var markahæst í okkar liði með 7 mörk (þar af 4 úr vítum) og þær Rut Jónsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir gerðu báðar 5 mörk. Hulda Bryndís Tryggvadóttir, Aldís Ásta Heimisdóttir og Sólveig Lára Kristjánsdóttir gerðu allar tvö mörk og Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir gerði eitt mark. Matea Lonac varði alls 10 skot í markinu og var með um 31% vörslu.