Montrétturinn undir þegar KA tekur á móti Þór

Handbolti
Montrétturinn undir þegar KA tekur á móti Þór
Strákarnir eftir sigur á Þór fyrr í vetur

Kæru KA-menn, það er komið að því! KA tekur á móti Þór í síðustu umferð Olísdeildar karla á morgun, fimmtudag, klukkan 19:30. Strákarnir eru komnir í úrslitakeppnina en þurfa á sigri að halda til að koma sér í betri stöðu fyrir þá veislu!

KA hefur unnið báða bæjarslagina í vetur en við þurfum á ykkar stuðning að halda til að tryggja áfram gulan og bláan Akureyrarbæ. Fyrir leikinn er KA í 5. sæti deildarinnar og er aðeins einu stigi frá 3. sætinu, á sama tíma er aðeins eitt stig niður í 8. sætið. Það eru því gífurlega mikilvæg stig í húfi á morgun.

Miðasala á leikinn er hafin í Stubbsappinu en áhorfendum verður skipt upp í tvö svæði, A og B svæði. Ársmiðahafar mæta á A-svæði en stakir miðar eru til sölu í bæði svæðin í Stubbsappinu. Gengið er inn á svæði A um aðalinngang KA-Heimilisins en inn á svæði B í gegnum Rampinn við íþróttasalinn. Sjá útskýringarmynd hér fyrir neðan.

Hlökkum til að sjá ykkur gulklædd í stúkunni, áfram KA!

Ef þú kemst ómögulega á leikinn verður hann í beinni útsendingu á KA-TV:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is