Flýtilyklar
KA/Þór fékk meistarana frá Kósóvó
Dregið var í fyrstu umferðir Evrópubikarkeppni kvenna í dag en Íslandsmeistarar KA/Þórs taka þátt í fyrsta skiptið í Evrópukeppni eftir frábæran árangur á síðustu leiktíð. Raunar ætlaði liðið að taka þátt í Evrópukeppni á síðustu leiktíð en ekkert varð af því vegna Covid veirunnar.
Andstæðingar stelpnanna í fyrstu umferð verða meistararnir frá Kósóvó en það er lið KFH Istogu. Istogu bar höfuð og herðar yfir önnur lið í Kósóvó á síðustu leiktíð en auk þess að verða landsmeistari varð liðið bikarmeistari og það án þess að tapa leik allt tímabilið. Þá hefur lið Istogu hefur undanfarin þrjú tímabil keppt í Evrópukeppni en í fyrra tapaði liðið með eins marks mun fyrir Victoria-Berestie í þriðju umferð keppninnar.
Það er því ljóst að andstæðingur okkar er sterkur og verður spennandi að sjá hvar stelpurnar okkar standa þegar liðin mætast en áætlað er að fyrri viðureign liðanna fari fram í Kósóvó 16. eða 17. október og sá síðari í KA-Heimilinu þann 23. eða 24. október. Það gæti þó breyst og munum við tilkynna breytingar hér á síðunni ef af verða.