Jónatan Magnússon tekur við þjálfun KA/Þór á næsta tímabili

Handbolti
Jónatan Magnússon tekur við þjálfun KA/Þór á næsta tímabili
Jonni og Stebbi handsala samninginn góða

Þau stórkostlegu tíðindi voru að berast að Jónatan Magnússon hefur ákveðið að taka slaginn með kvennaliði KA/Þór næstu árin. Stuðningsmenn KA/Þór ættu að vera kunnugir Jónatani en hann þjálfaði liðið tvo vetur og kom þeim m.a. upp um deild og í FINAL4 helgina, sem var upphafið af miklum uppgangi liðsins. Ljóst er að þetta eru magnaðar fréttir fyrir handboltaáhugafólk og stuðningsfólk KA/Þór!

Jónatan tók svo við þjálfun karlaliðs KA ásamt því að vera yfirþjálfari hjá félaginu. Ljóst er að nokkrar breytingar verða á störfum innan skrifstofu handknattleiksdeildar KA á næstu misserum en Jónatan tekur að sér þjálfun KA/Þór í fullu starfi, ásamt því að þjálfa þriðja flokkinn samhliða því.

Stefán Guðnason, formaður kvennaráðs KA/Þór sagði í samtali við heimasíðuna vera í skýjunum með þessa ráðningu: "Þetta eru frábærar fréttir. Jónatan er einn besti þjálfari landsins og það er mjög gott fyrir KA/Þór að fá slíkann þjálfara í brúnna. Nú hefst mikið uppbyggingarferli og gæti ég ekki hugsað mér betri mann í þetta verkefni en Jónatan".

Samningur Jonna við KA/Þór er til þriggja ára. 

Stefán vildi einnig þakka Örnu Valgerði fyrir vel unnin störf, en hún lætur að stjórn KA/Þór að leiktíðinni liðinni: "Arna Erlingsdóttir bjargaði okkur algjörlega síðasta sumar þegar hún steig inn í mjög krefjandi aðstæður hjá okkur. Lykilmenn voru dottnir út eða farnir. Það þurfti mikið hugrekki hjá henni að taka við liðinu í því ástandi sem það var.

Hún var hins vegar heiðarleg við okkur frá byrjun að hún stefndi á frekara nám í þjálfarafræðunum á næsta ári og ætlaði að kúpla sig út úr þjálfun það sama ár, enda kom þetta tækifæri mun fyrr upp fyrir hana en hún stefndi á. Það gaf okkur svigrúm og góðan tíma til að finna nýjan þjálfara og þegar ljóst var að Jonni væri áhugasamur um verkefnið sem bíður hans var þetta aldrei spurning."


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is