ÍBV - KA/Þór frestað til morguns

Handbolti
ÍBV - KA/Þór frestað til morguns
Langt ferðalag framundan (mynd: Egill Bjarni)

Leik ÍBV og KA/Þórs í Olísdeild kvenna sem átti að fara fram í Vestmannaeyjum í dag hefur verið frestað til morguns vegna veðurs. Stelpurnar áttu flug í dag en ekki er hægt að fljúga í veðrinu sem nú gengur yfir og ljóst að þess í stað mun liðið keyra og sigla til Vestmannaeyja.

Nýr leiktími hefur nú verið staðfestur og fer leikurinn fram klukkan 18:00 á morgun, en stelpurnar leggja af stað í rútu nú um klukkan 13:30.

Leikurinn verður í beinni á ÍBV-TV og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is