Flýtilyklar
Helga Hansdóttir keppir á Ólympíuleikum æskunnar.
22.05.2009
Júdó
Helga Hansdóttir mun keppa á Ólympíuleikum æskunnar í Finnlandi í sumar.
Helga er komin í flokk með sterkustu júdókonum Íslands þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára. Á stigalista
Júdósambandsins er Helga næst hæst að stigum í kvennaflokki, næst á eftir Önnu Soffíu Víkingsdóttir sem er ein af sterkustu
júdókonum á Norðurlöndum.