Flýtilyklar
Handboltaæfingar vetrarins byrja á mánudaginn
19.08.2022
Handbolti
Handboltinn fer aftur að rúlla eftir helgi og hefjast æfingar yngriflokka KA og KA/Þórs á mánudaginn, 22. ágúst. Það er svo sannarlega mikil eftirvænting hjá okkur að byrja aftur og byggja áfram ofan á frábærum árangri undanfarinna ára.
Rétt eins og síðasta vetur er æft á fjórum stöðum í bænum, KA-Heimilinu, Íþróttahöllinni, Síðuskóla og Naustaskóla. Auk þess eru sérhæfðar styrktaræfingar fyrir 3. og 4. flokk í Training for Warriors sem er í KA-Heimilinu.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að prófa handbolta að mæta á æfingu og taka þátt í fjörinu!
Með æfingagjöldunum í vetur fylgir glæsileg Macron æfingatreyja í litum KA og KA/Þórs.