Grímsi og Hrannar framlengja út 2023

Handbolti

Hallgrímur Mar og Hrannar Björn Steingrímssynir skrifuðu báðir undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og eru nú samningsbundnir út sumarið 2023. Báðir eru þeir algjörir lykilmenn í liði KA sem er í toppbaráttu efstu deildar í sumar auk þess að vera komið áfram í Mjólkurbikarnum.

Bræðurnir eru uppaldnir í Völsung á Húsavík en gengu báðir ungir að aldri til liðs við KA en Grímsi gekk í raðir KA aðeins 18 ára gamall og Hrannar var 21 árs er hann tók stökkið yfir á brekkuna. Þeir hafa heldur betur reynst félaginu vel hvort sem er innan sem utan vallar og eru það því frábærar fréttir að halda þeim áfram innan okkar raða. 

Hallgrímur Mar sem verður 31 árs á árinu er leikjahæsti leikmaður í sögu KA en hann hefur nú leikið 238 leiki fyrir félagið í deild og bikar auk þess sem hann er markahæsti leikmaður KA í efstu deild með 31 mark. Alls hefur hann skorað 71 mark fyrir félagið og er aðeins tveimur mörkum frá Hreini Hringssyni sem er markahæstur með 73 mörk.

Hrannar Björn sem er 29 ára gamall hefur leikið 156 leiki fyrir KA í deild og bikar en Hrannar sem leikur sem bakvörður hefur gert tvö mörk í leikjunum og eru þau bæði af dýrari gerðinni. 

Bræðurnir eru báðir miklir leiðtogar og láta mikið fyrir sér fara inni á vellinum. Þá koma þeir úr mikilli fótboltafjölskyldu en bræður þeirra þeir Guðmundur Óli og Sveinbjörn Már hafa einnig leikið með KA.

Við hlökkum því áfram til að berja bræðurna augum í gula og bláa búningnum en næsti leikur KA er á þriðjudaginn er liðið sækir Fylki heim í Árbæinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is