Fjórar frá KA/Þór í B-landsliðinu

Handbolti
Fjórar frá KA/Þór í B-landsliðinu
Frábærir fulltrúar KA/Þórs í B-landsliðinu!

B-landslið Íslands í handbolta kvenna kemur saman til æfinga í vikunni en þær Hrafnhildur Skúladóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir þjálfarar liðsins völdu alls 16 leikmenn í æfingahópinn sem kemur saman á fimmtudag og æfir út sunnudag.

KA/Þór á fjóra fulltrúa í hópnum en það eru þær Aldís Ásta Heimisdóttir, Anna Þyrí Halldórsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir og Sunna Guðrún Pétursdóttir. Við óskum stelpunum innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is