Flýtilyklar
Endurkoma KA gegn Haukum 2002
Við höldum áfram að rifja upp skemmtileg augnablik úr sögu KA og nú rifjum við upp eina mögnuðustu endurkomu í handboltasögu KA. Hún kom í fyrri undanúrslitaleik KA og Hauka árið 2002 en Haukar sem voru Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar leiddu 16-8 í hálfleik. Útlitið var því ansi svart en KA liðið gafst svo sannarlega ekki upp!
KA vann að lokum 32-34 sigur eftir framlengingu og þurfti því aðeins einn sigur í viðbót til að slá út ógnarsterkt lið Hauka og tryggja sér sæti í lokaúrslitunum. Leikurinn í KA-Heimilinu var einnig ógleymanlegur en eftir mikla dramatík fyrir framan troðfullt KA-Heimili vann KA liðið 27-26 sigur og hefndi þar fyrir tapið gegn Haukunum árið áður í lokaúrslitunum.