Flýtilyklar
Gylfi keppir í Finnlandi
24.10.2019
Almennt | Júdó
Níu keppendur frá Íslandi munu keppa á Opna finnska meistaramótinu í júdó sem haldið verður í Turku Finnlandi á laugardaginn næstkomandi. Gylfi Rúnar Edduson mun keppa í -66kg flokki í U18 og U21. Landsliðsþjálfarar eru Jón Þór Þórarinsson og Þormóður Jónsson. Keppni mun hefjast kl. 7 að íslenskum tíma. Á sunnudaginn tekur hópurinn þátt í alþjóðlegum æfingabúðum sem haldnar eru í tengslum við mótið.
Hægt verður að fylgjast með keppninni og útsendingu hér.
KA óskar Gylfa góðs gengis.