Tryggjum stelpunum oddaleik!

Handbolti

KA/Þór og Valur mætast í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta í KA-Heimilinu á morgun, laugardag, klukkan 15:00. Valur leiðir einvígið 1-2 eftir sigur á Hlíðarenda í gær eftir afar sveiflukenndan leik.

Það er því alveg klárt að við þurfum að fjölmenna í stúkuna og styðja stelpurnar til sigurs. Með sigri tryggjum við hreinan oddaleik um sæti í lokaúrslitunum og það er alls ekki í boði að tapa í KA-Heimilinu!

Við ætlum að byrja daginn snemma og byrjum að selja grillaða hamborgara klukkan 14:00 og því eina vitið að mæta snemma og taka strax þátt í stemningunni, þetta er okkar dagur gott fólk!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is