Leik KA og ÍBV frestað um sinn

Handbolti

UPPFÆRT! Leiknum hefur verið frestað og fer því ekki fram í dag, laugardag, vegna takmarkaðra flugsamgangna. Ekki hefur verið ákveðinn nýr leiktími en við munum láta vita um leið og nýr leiktími verður ákveðinn.


 

Eftir góða EM pásu er loksins komið að fyrsta leik ársins hjá strákunum í handboltanum er KA tekur á móti ÍBV í stórleik í KA-Heimilinu á morgun, laugardag, klukkan 16:00. Strákarnir koma af miklum krafti inn í leikinn en þeir hafa unnið þrjá síðustu leiki sína og ætla sér enn meira.

Stuðningur ykkar skiptir öllu máli í stúkunni og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest. Engin þörf er á hraðprófi og getum við tekið við 500 manns í hverja stúku og því eina vitið að mæta og sýna strákunum stuðning.

Fyrir leik munum við hylla þrjár goðsagnir úr handboltasögu KA og goðsagnirnar verða því orðnar níu talsins uppi í rjáfri KA-Heimilisins að leik loknum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is