Flýtilyklar
Síðasti heimaleikur ársins á föstudaginn!
09.12.2021
Handbolti
KA tekur á móti HK í síðasta heimaleik ársins í handboltanum klukkan 19:30 á föstudaginn. Strákarnir unnu frábæran sigur í síðasta leik og þurfa á þínum stuðning að halda til að endurtaka leikinn!
Það eru 500 áhorfendur leyfðir með framvísun neikvæðs hraðprófs rétt eins og á síðasta leik þar sem myndaðist frábær stemning. Gerum þetta saman og tryggjum mikilvæg stig í hús, áfram KA!
Leikurinn er í beinni útsendingu á KA-TV fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið og hvetjum við ykkur eindregið til að fylgjast vel með gangi mála. Í kjölfarið mætast svo ungmennalið KA og ungmennalið HK kl. 21:20 og er sá leikur einnig í beinni á KA-TV.