Óðinn í æfingahóp A-landsliðsins

Handbolti

Óðinn Þór Ríkharðsson leikmaður KA var í dag valinn í æfingahóp A-landsliðs karla í handbolta sem kemur saman til æfinga dagana 14.-20. mars næstkomandi. Óðinn hefur farið á kostum með KA í vetur en hann er einn af markahæstu leikmönnum Olísdeildarinnar með 107 mörk í 15 leikjum.

Ísland sem endaði í 6. sæti á EM í byrjun árs situr hjá í fyrri umferð umspilsins um laust sæti á HM 2023 en strákarnir mæta sigurvegaranum úr viðureign Eistlands og Austurríkis sem fer fram um miðjan apríl.

Við óskum Óðni til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is