Flýtilyklar
Myndaveisla er KA lagði Þór öðru sinni
Þór og KA mættust öðru sinni á skömmum tíma í Höllinni í gær en KA hafði slegið nágranna sína útúr Coca-Cola bikarnum ellefu dögum áður. Nú var hinsvegar leikið í Olísdeildinni en auk montréttsins í bænum börðust liðin fyrir tveimur ansi mikilvægum stigum.
Úr varð því hörku spennandi leikur þar sem hart var barist en sóknarleikur beggja liða varð fyrir vikið frekar bitlaus. Að lokum tókst strákunum að endurtaka leikinn frá því á dögunum og fóru með 19-21 sigur úr Höllinni.
Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum og býður til myndaveislu frá herlegheitunum en sigurgleðin sem braust út í leikslok hjá þeim gulklæddu var ansi innileg enda montrétturinn í bænum áfram á brekkunni. Við kunnum Þóri bestu þakkir fyrir framtakið.
Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggva frá leiknum
Þá lyfti sigurinn liðinu upp í 5. sæti deildarinnar með 12 stig en eftir svekkjandi tap gegn Aftureldingu á heimavelli eru strákarnir ósigraðir í sex leikjum og hafa í fimm af þessum leikjum tryggt sér annaðhvort sigur eða stig með frábærum endasprett. Karakterinn hjá liðinu er algjörlega til fyrirmyndar og verður spennandi að sjá framhaldið en deildarkeppnin verður hálfnuð á fimmtudaginn er Haukar mæta norður.